Jæja...þá er þetta stutta páskafrí á enda.
Ég ætla að segja frá þessu fríi í smáatriðum en ég held a þessi
grein eigi eftir að vera soldið löng. En allavega já.
Laugardagur:
Svaf lengi lengi og þegar
ég vaknaði var heví tiltekt á heimilinu og auðvitað var ég í
aðaæhlutverki....ég þrífa bílinn, fara til lyklasmiðsins, ryksuga
og fl. Og fl. En þetta bara þarf maður að þola annars getur maður
bara sleppt því að lifa..nei nei. En já, um daginn tók ég strætó
uppí sveit til Árna og Hjartar og þar var bara tsjillað í svona
klst og svo var förinni heitið útí bæinn að kaupa kepab..það var
gott en eftir þetta var dagurinn hálf dauður.
Sunnudagur.
Þá var förinni heitið til Vínarborg. Þar
hittum við vinafólk okkar sem við gistum líka hjá. Síðan var stráka
og karla ferð á írskan bar til þess að horfa á Man utd á móti
Arsenal....leikurinn endaði 2-0 fyrir man utd eins og flestir held
ég vita....síðan var bara farið heim í hús og slakað á.
Mán- þri- og Miðvikudagur.
Þessir dagar voru flest allir eins t.d. þá
bara var farið í hjólaferð um borgina, sædýrasafnið sem var allveg
mjög gaman og svo bara útí bæ og útí bæ (þetta er ekki villa). Svo
var líka farið til slóvakíu en ég er búinn að blogga frá því.
Fimmtudagur.
Þá var förinni heitið til Slóveníu til vinkonu
mömmu sem heitir Petra Brdnik..gaman af því...skrýtið eftirnafn.
Þar var farið í fjallgöngu uppí einhvern eldgamlann kastala. Og fl.
Og fl.
Föstudagur:
Þá var vaknað snemma. Fórum síðan til
býflugnabóndans í þorpinu og við keyptum handa honum fullt af
allskona mismunandi hunangi. Síðan sýndi þessi kall okkur
býflugnabúin og gaurinn hann bara labbaði inní búið þar sem voru
milljón flugur. Hann sagði okkur að koma líka og við gerðum það en
mér fannst þetta svona þokkalega óþægjilegt enda ekkert skrýtið,
stórhættulegt dýr en hann sagði að þær myndu ekkert stinga ef þú
hreyfðir þig hægt en viti menn...var ekki ein flugan sem stakk
gamla pabba minn..haha...gott á hann. En eftir þetta þá hittum við
afa Petru og hann sýndi okkur vínekruna sína sem hann sér um. Mjög
gaman að sjá það. En síðan eftir þetta var förinni heitið til
Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu. Þar vissum við
að 200 manna íslensk vél hafði lent þar daginn
áður og þar á meðal í þessari vél var maður frænku minnar en ég
kalla hann bara frænda minn, Tony. Við hittum hann í smá stund. En
þessi borg er allveg ógeðslega flott og fólkið þar er skemmtilegt,
eitthvað annað en í Slóvakíu. Við gistum þessa nótt í pínu pínu
pínu lítilli íbúð sem Marco, bróðir Petru átti. Það komust varla 4
dínur þarna inn, svona 20 fermetrar. En þetta var allt í góðu því
að við vorum þarna bara um nóttina og ég svaf allveg frábærlega
þessa nóttina, eitthvað annað en hinir í fjölskylduni út af því að
það voru fuglar sem héldu vöku fyrir þeim.
Laugardagur.
Já, við kíktum aftur aðeins útí bæ og kíktum á
markaðinn og svona. Fullt af Íslendingum þarna. En síðan hittum við
aftur fyrir tilviljun Tony og vinkonu hans og svo vini þeirra sem
voru foreldrar Helga Kolviðssonar í landsliðinu í fótbolta en ég
held að hann sé hættur. Þá fengum við okkur að
borða og svona. Svo seinna um daginn fórum við í
heimsfrægu dropasteins hellana í Postojna. Þeir voru fokking
risastórir. 20 km langur held ég. Tókum fyrst lest þangað inn í
einhvern tíma og svo löbbuðum við um hellinn í vona 45 mín. Þetta
var svona Indiana jones hellir svoldið. En já...þetta var ógeðslega
gaman. Eftir það keyrðum við í einhvern ógeðslega ljótan skítugan
bæ þar sem við gistum á hóteli. Mega ljótt hótel. Skítug teppi,
pöddur í rúminu og fl.
Sunnudagur.
Vöknuðum snemma til þess að geta átt langan
páskadag. Keyrðum til Izola sem er lítið þorp og löbbuð þar aðeins
um. Svo keyrðum við lengra til lítis bæjar sem heitir Piran. Þessi
bær er sagður vera einn fallegasti bær í evrópu. Fórum þar aðeins
að labba og þá gerðist svoldið skrýtið. Við löbbuðum inní eina
búðina sem seldi eikka handmade slovenian dót og mamma tók upp
einhvern hlut og sagði: vá, þessi er flottur. Þá sagði
starfsmaðurinn, já hann er mjög flottur, á íslensku og við bara
vorum nett hissa og við töluðum við hann og þá hafði hann unnið á
sjónum á Íslandi í 8 ár. Gaurinn talaði frábæra íslensku og hélt ég
í smá tíma að hann væri pure íslendingur en hann var bara pure
slóveni. Mér myndi ekkert finnast það skrýtið ef Dani, Norðmaður
eða Svíi kynni íslensku sen þetta var Slóveni...frekar svalt. Hann
benti okkur á veitingastað í næsta bæ við, portoroz og þar voru 2
gaurar sem kynnu Íslensku. Ok...fórum um kvöldið til Portoroz og
fórum á þennan stað og hittum gaurana...töluðu frábæra íslensku. Ég
pantaði mér steiktan smokkfisk...vá hvað hann er góður.. mæli með
honum. Síðan var bara flugeldasýning um kvöldið og svona. Um
kvöldið gistum við á á miklu betra hóteli. Fórum í sund og svona.
Þessi laug var risastór en í henni voru svona 200 gamalmenni. Ég er
ekki að grínast...um 200 gamalmenni. Ekki það að ég hafi eitthvað á
móti gamalmennum, þau eru yfirleitt frábært fólk sem er gaman að
spjalla við en allt er gott í hófi. Við pabbi löbbuðum þarna inn
eins og einhverjir lúðar og það var horft ekkert má mikið á okkur.
Eins og allir voru að hugsa svona: þeir eru undir nítugt...drepum
þá. En allavega þá svaf ég vel um kvöldið sem mér finnst mjög
mikilvægt.
Mánudagur.
Borðuðum morgunmat og keyrðum svo til Feneyja á Ítalíu. Þurftum að
taka þarna bát inní borgina vegna þess að þarna eru eiginlega engir
bílar og allar samgöngur eru á bátum, enda eru landflestar götur
þarna bara einhver sýki. Það var alveg mjög gaman að koma þangað.
En síðan um kvöldið var förinni heitið heim til Salzburgar. Svona
var þetta frí. Vona að þið sofnuðuð ekki við að lesa þetta og ég
vona að þið hafið haft gaman af.